Vel heppnuð nýnemaferð
Í vikunni var farið í nýnemaferð. Ferðin tókst afar vel, en skipulag hennar var alfarið á höndum mentorahóps FSu. Allir nýnemar fara í svokallaðan Bragaáfanga sem eru einingabærir áfangar sem hafa það að markmiði að efla samkennd og hópefli, kynna vel fyrir nemendum öll kerfi og þjónustu skólans, vinna að námstækni og góðum vinnubrögðum í námi og gera nemendur fulllfæra og sjálfbæra í námi þar sem þau byggja upp sinn námsferil. Hver árgangur skiptist niður á Bragakennara sem fylgja þeim eftir í 3 annir. Bragakennarar eru einnig umsjónarkennarar.
Hverjum hópi er svo úthlutað mentorum, sem eru eldri nemendur úr FSu, en þeirra hlutverk er að bjóða nemendur velkomna í skólann, ýta undir hópefli og samkennd í bekkjunum og styðja þau og styrkja.
Nýnemaferðin var eins og áður sagði alfarið skipulögð af mentorahópnum. Farið var með rútum í Felagslund í Flóahreppi. Þar voru hóparnir saman að leysa þrautir, grilla pylsur og fara í leiki. Einnig var haldinn kosningafundur vegna kosningu fulltrúa nýnema í nemendaráð, en 4 nemendur buðu sig fram. Haldnar voru framboðsræður og kynningar. Sigga Kling kom og skemmti nemendum af sinni alkunnu snilld. Nemendur létu vel af ferðinni og ekki skemmdi blíðviðrið fyrir. Þrautirnar voru mjög fjölbreyttar, en meðal annars áttu hóparnir að hanna brúðarkjól úr klósettrúllum, búa til sögur, svara spurningum, keppa í kókosbolluáti og keppa í hindrunahlaupi.
Fleiri myndir úr ferðinni má sjá á fésbókarsíðu FSu.