Verðlaunaafhending

Miðvikudaginn 25. mars voru afhent verðlaun fyrir sigur í forritunarkeppni framhaldsskólanna. Verðlaunahafarnir úr FSu, Jónatan Óskar Nilsson og Sigurður Fannar Vilhelmsson, afhentu kennara sínum, Ragnari Geir Brynjólfssyni, hinn glæsilega verðlaunabikar sem þeir hlutu á dögunum, og Ragnar kom bikarnum í hendur Örlygi skólameistara sem varðveitir hann fyrir hönd FSu. Gabríel A. Pétursson úr FSn var einnig í sigurliðinu.