Verkfall félagsmanna KÍ

Verkfall félagsmanna KÍ í níu skólum hófst á miðnætti. FSu er einn þessara skóla. Verkfallið í FSu er tímabundið og stendur 29. október - 20. desember ef samningar nást ekki á tímabilinu. Kennarar, námsráðgjafar og stjórnendur leggja niður störf en annað starfsfólk er við vinnu, m.a. húsverðir, bókasafnsfræðingar og skólameistari. Skrifstofan er opin 8:00-12:00 og 13:00 - 15:30. Nánari upplýsingar hafa borist nemendum og foreldrum/forráðamönnum í tölvupósti.