Verklegu prófi lokið

Nemendur á sjúkraliðabraut hafa nú lokið verklegu prófi í hjúkrun. Er fyrirkomulagið þannig að hver nemi dregur miða með verkefni á og vinnur  það verkefni á korteri.  Prófdómari var Katrín Ósk Þorgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur en sjúklingur var aðalkennari sjúkraliðabrautar, Íris Þórðardóttir framhaldsskólakennari og hjúkrunarfræðingur.  Á myndinni er nemahópurinn, sem stóðst allur prófið, og Valdimar fremstur en hann hefur verið sjálfboðaliði í hinum sívinsæla neðanþvotti í vetur.