Fréttir
Samstarfsverkefni – kynning á málefnum flóttafólks.
20.04.2021
Dagana 19. til 26. apríl standa nemendur í áföngunum FÉLA2FL05 og FÉLA3RS05 fyrir kynningu á málefnum flóttafólks og réttindastöðu þeirra. Nemendur áfanganna hafa unnið saman síðustu vikur að veggspjöldum með kynningarefni, tölfræði, staðreyndum og vakningarefni, verið í samstarfi við Solaris og Amnesty.
Lesa meira
Miðbær heimsóttur
19.04.2021
Nemendur í inniklæðningu (NNK2HH05) heimsóttu nýverið JÁ verk og skoðuðu byggingar í nýjum miðbæ hér á Selfossi. Þar tóku þeir Guðjón Þórisson og Sævar Sverrisson á móti hópnum og fræddu nemendur um húsin.
Lesa meira
Plokkað og flokkað
14.04.2021
Þann 13. apríl fóru nemendur í UMHV1SU05 út að plokka í nágrenni FSu. Nemendur hópuðu sig saman og létu hendur svo sannarlega standa fram úr ermum.
Lesa meira
Tilfærsla Office365 til HÍ og eyðing gagna
13.04.2021
Vegna fyrirhugaðrar tilfærslu Office365 aðgangs FSu til Háskóla Íslands verður núverandi Office365 aðgangi nemenda eytt eftir 20. júní.
Lesa meira
Hespuhúsið heimsótt
19.03.2021
Nemendur í HÖTE3HH, Hönnun og þráðlist, fóru nýverið í vettvangsferð og heimsóttu Hespuhúsið, jurtalitavinnustofu sem staðsett er í Ölfusi. Þar tók Guðrún Bjarnadóttir á móti nemendum og kynnti fyrir þeim jurtalitun.
Lesa meira
Opið hús í FSu
12.03.2021
Þriðjudaginn 16. mars verður opið hús í FSu kl. 16:30 - 18:00. Þá verður hægt að skoða skólann, aðstöðuna og hitta kennslu- og fagstjóra auk námsráðgjafa og stjórnendur. Heitt verður á könnunni. Nemendur 10. bekkjar og aðstandendur, bæði úr grunnskóla og aðstandendur 1. árs nemenda í FSu eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Verið hjartanlega velkomin
Lesa meira