08.09.2017
Á þessari önn eru kenndir tveir fjallgönguáfangar. Einingarnar sem fást fyrir þessa áfanga metast sem íþróttaeiningar. Annar hópurinn fer í nokkrar fjallgöngur í nágrenni skólanns, þrjár styttri göngur á föstudögum eftir skóla og tvær lengri laugardagsgöngur. Myndir úr þeim ferðum koma síðar.
Hinn hópurinn gekk yfir Fimmvörðuháls á dögunum
Lesa meira
08.09.2017
Nemendur með greiningu um námserfiðleika eiga rétt á aðgangi að hljóðbókum í námi sínu. Hér á eftir eru upplýsingar um hvernig ferlið gengur fyrir sig.
Lesa meira
07.09.2017
Í vikunni var farið í nýnemaferð. Ferðin tókst afar vel, en skipulag hennar var alfarið á höndum mentorahóps FSu.
Lesa meira
04.09.2017
Á morgun þriðjudaginn 5. september kl. 20-21:30, verður haldin foreldrakynning fyrir foreldra og forráðamenn nýnema.
Lesa meira
31.08.2017
Nemendur á Hestabraut drifu sig í vettvangsferð í morgun, fimmtudaginn 31. ágúst, til að skoða hrossabeit. Stefnan var tekin niður á Stokkseyrarveg þar sem auðvelt aðgengi er að nokkrum hrossahólfum og létu nemendur smá súldarveður ekki aftra sér, enda þar á ferð hraustleikafólk upp til hópa. Tilgangur ferðarinnar var að skoða og fá æfingu í að meta haglendi fyrir hross, en landlæsi er einn þáttur í áföngunum „Fóður og heilsa“
Lesa meira
31.08.2017
Módel óskast!
Myndlistarbrautin í Fjölbrautaskóla Suðurlands býður upp á nýjan áfanga á 3. Þrepi. Í áfanganum sem ber heitið Maður og efni er fengist við mannslíkamann, standandi, liggjandi, sitjandi og í alls konar stellingum. Þar af leiðandi óskum við eftir að ráða módel til að sitja fyrir nakið í þessum áfanga MYND3ME05.
Lesa meira
30.08.2017
Grunnnemar í byggingagreinum fóru í vettvangsskoðun og kíktu á skipulag, göngustíga, byggingastíla og iðnaðarmenn við vinnu,. Nemendur veltu fyrir sér hlutverki mismunandi iðngreina, hlutverki hönnuða, arkitekta, landslagsarkitekta og þar fram eftir götum. Ferðin var farin til að opna umræður í tímum og víkka sjóndeildarhring nemenda um möguleika framtíðarinnar, hvað þá langi til að gera eða vinna við í framtíðinni.
Lesa meira
23.08.2017
Nemendur í áfanganum ERGó1AA05 hafa notað veðurblíðuna í vikunni til að fara út í leiki. Eftir að hafa fundið ZipZapBoing meistarana í hópnum sem og lymskustu morðingjana í Morðingjaleik endaði þessi hópur á slökun í sólinni með fögrum fuglasöng í bakgrunni.
Lesa meira
18.08.2017
Nýtt skólaár er hafið af fullum krafti og á fimmtudag fylltist skólinn af kraftmiklum hópi nýnema sem tóku þátt í nýnemadegi
Lesa meira
16.08.2017
Önnin hefst á nýnemadegi fimmtudaginn 17. ágúst kl.8:30. Dagurinn er aðallega ætlaður nýnemum, en aðrir nemendur, sem aldrei hafa áður stundað nám í FSu, eru einnig velkomnir. Nemendur munu fá afhentar stundaskrár, fá kynningu á skólanum, tölvukerfunum, nemendafélaginu og mörgu fleira. Dagskrá nýnemadags lýkur um kl.13:30. Nemendur fylgist með tímatöflu Strætó vegna heimferðar.
Fimmtudaginndaginn 17. ágúst kl. 9:00 opnar Inna fyrir nemendur.
Kennsla hefst samkvæmt stundarskrá föstudaginn 18. ágúst kl. 8:15.
Lesa meira